Þar sem báran er hvít, þar er vindur
29.05.2007 21:31:18 / einar-ru

Hitabylgja í helvíti

Það er dáldið skrítið að vera staddur í Moskvu þar sem hitabylgjan er. Búið er að vera yfir 30 stiga hiti síðustu daga. Það er heitara hér en í Jerúsalem Ísrael, Amman Jórdaníu og Kinchasa Kongo. Það er sama hvað þú gerir þú getur ekki sloppið við hitann. Fjölskyldan kémur á morgun, en það verða viðbrigði fyrir þau að koma út í þetta veður. Síðan held ég af stað í ferðarlagið mitt. Þetta er semsagt síðasta færsla mín héðan úr Moskvu. Ég kem ekki til með að halda út þessa blogsíðu lengur. Ég þakka þeim sem hafa litið hérna inn og sett inn færslur. Annars bið ég að heilsa og sjáumst heima á Íslandi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 07:37:33 / einar-ru

annarlok

Nú er skólin formlega lokið þessa önn. Nú bíð ég bara eftir fjölskyldunni og reyni að nýta tíman sem ég á eftir. Á miðvikudaginn var haldið lokapartý á vistinni. Fólk bjót til mat eða keypti vín. Síðan var borðað og drukkið. Stelpurnar völdu aldeilis daginn en þegar klukkan sló 10 var kveikt á sjónvarpinu til að sjá leikinn Milan-Liverpool. Þetta vakti mikla lukku eða hitt og heldur. En þegar leiknum lauk var stigið í trylltan dans og síðan haldið út á lífið. Í gær fór ég með hóp af krökkum af vistinni á ströndina. Við tókum lest í 3 tíma í bæin Konova sem liggur meðfram ánni Volgu. Við nutum dagsins í sólinni og ég afrekaði að synda í ánni. Tíminn flýgur og fyrstu krakkarnir fara í sumarferðir eða heim í dag. Komið er að kveðjustund en þessi önn hefur verið skemmtileg og gaman að hafa kynnst sumu af þessu fólki. Bið að heilsa til íslands og hafið það gott.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 17:58:30 / einar-ru

plekhanov bikarinn og sumarið

Í dag var spilað í undanúrslitum í Plekhanov bikarnum. Talið var að sigurvegari úr viðureign Golden Boys og Finance, yrði endanlegur sigurvegari. Tvö sterkustu liðin í undanúrslitum spiluðu gegn hvor öðru. Eftir fimm mínótur komust Finance yfir eftir flott samspil. Það tók ekki langan tíma fyrir Gb að svara fyrir sig en leikar í hálfleik voru 1-1. Í fyrstu sókn Finance í seinni hálfleik komust þeir yfir eftir laglegt skot innan vítateigs. Allan seinni hálfleik sóttu GB menn hart að marki Finance án þess að skapa sér mikið af færum. Finance nýttu sér þetta og komust í tvær góðar sóknir. Leikar enduðu samt 2-1 Finance í vil, eftir skemmtilegan og fjörugan leik. Ætla má að Finance sé orðnir meistarar þetta árið, en mótstaðan í næsta leik er ekki mikil.

Ég keypti hinsvegar miða í þriggja vikna interrail í sumar. Fjölskyldan mín fer frá Moskvu 6 júni og næsta dag held ég til Úkraínu. Ég verð í Kiev í tvo daga áður en ég held af stað til Rúmeníu. Þar hitti ég fyrir tvær vinkonur mínar Sevrin (Fra) og Charlotta (Fra). Við höldum síðan af stað og ferðumst til Ungverjarlands, Slóvakíu og Tékklands. Þaðan skyl ég við þær og fer til Vín í Austurríki áður en ég held til Mílan á Ítalíu. Þar kém ég til með að hitta Stefán vin minn og gista hjá honum í nokkra daga. Hann fer síðan til Íslands en þá fer ég til Strazburg í Frakklandi þar sem Unnur vínkona mín býr. Hún ætlar að sýna mér borgina og skjóta yfir mig skjólshúsi. Þaðan fer ég til Amsterdam þar sem stelpurnar verða, en Rakel frænka mín býr þar einmitt lýka núna. Fyrir utan það á ég 4 góða vini sem ég hef kynnst hérna á vistinni. Þrjú af þeim búa í Amsterdam þannig að af nógu verður að taka þar. Síðan held ég för minni til Parísar þar sem ég kem til með að fljúga heim eftir nokkra daga dvöl.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 16:03:12 / einar-ru

Plekhanov bikarinn

Í gær lék lið Golden Boys fyrsta leik sinn í Plekhanov bikarnum. GB mættu sterku liði IBS, var talið að leikurinn yrði jafn og fjörugur. Leikið var á gervigrasi í blíðskaparverði sem var sömu stærðar og handboltavöllur. Leikið var fimm gegn fimm og spilað var tvisvar sinnum 20 mínótur. GB stilltu upp sínu sterkasta liði með einn varamann. Það voru hinsvegar Ibs sem náðu að nýta sér klaufaskap í vörninni og komust yfir á þriðju mínótu. Þetta virtist samt hleypa einhverju lífi í GB sem með báráttu sinni voru komnir í 3-1 í hálfleik. Seinni hálfleikur byrjaði eins og fyrri hafði endað. Ibs menn virust ekki eiga neitt svar við vel skipulögðum leik GB manna. Þegar flautað var til leiksloka var staðan orðin 8-1. Mörk GB skoruðu Ilia 4, Contan 3 og Einar 1. GB er því komið í undanúrslit sem spiluð verða á næsta föstudag. Ef þeim tekst að vinna spila þeir um bikarinn á sunnudaginn. Sigurinn var ekki eina gleðiefnið fyrir liðið, því þeir komust í heita sturtu. Búið er að skrúfa fyrir heitavatnið á vistinni og kémur ekki heitt vatn á aftur fyrr en eftir 3 vikur. Menn hafa því fyrir tvennt að spila, bikar og heitt vatn.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 13:46:41 / einar-ru

atvinnuleysi og ferðarlög

Í gær fékk ég þær fréttir að starfið sem mér bauðst hafi ekki gengið upp. Þetta var frekar leiðinlegt þar sem ég var farinn að hlakka til að vera kannski hérna í sumar. Það er hinsvegar ekkert hægt að vellta sér upp úr þessu.

 Félagi minn sem ég hafði nefnt áður og á að keyra bíl til Parísar hefur boðið mér með. Hann er hinsvegar að bíða eftir svari hvort að tengdarfaðir hans megi skrá bílin í Frakklandi. Þetta kémur víst í ljós vonandi seinna í vikunni. Ef af þessu verður, erum við 3 að fara keyra frá Moskvu til Parísar. Reyndar hoppar þriðji aðilinn úr í Amsterdam en er þaðan. Ég er því orðinn spenntur fyrir að ferðast í sumar en ef ekkert verður af þessu kíkí ég í smá interrail.

Síðan á morgun hefst hið árlega fótboltamót Plekhanov háskólans. Þar spila lið úr hverri deild innan skólans. Ég er í liði alþjóðardeildarinnar sem nefnist Golden Boys. Leikið verður innannhús, 2x 20 mín í tvem riðlum en 5 lið eru í hverjum riðli. Mótið tekur 2 vikur og allir spila við alla. Tvö efstu liðin í hverjum riðli keppast síðan við hvor önnur. Lið Golden Boys er skipað úrvalsliði allstaðar úr heiminum.

1. Markmaður: Misha Úkraínu.

2. Vörn: Silva Frakkland

3. Vörn/sóknartengiliður: Einar Ísland

4 Sókn: Contan Frakkland

5. Sókn: Ilía Þýskalnd (c)

Ég læt ykkur vita hvernig til tekst í mótinu, en talið er að við séum sigurstranglegir. Við höfum nefnilega ekki tapað leik í 4 vikur á skólalóðinni. Þangað til næst hafið það gott.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 19:11:18 / einar-ru

milli steins og sleggju

Núna er hausin á mér að springa. Ég var á leiðinni í interrail en annað hefur komið á bátin. Einn af þeim sem ætluðu í bílferðina til Frakkland hefur hætt við. Þannig að það er laust sæti fyrir mig. Eina er að hvenar þeir leggja af stað? Það er ekki komið á hreint.

 Hitt er lýka að mér bauðst starf hér í Moskvu. Ég sótti um starf hér í sumar hjá nokkrum fyrirtækjum frá íslandi en ílla gekk. Ég hafði gefið upp alla von þegar ég fékk mail um daginn. Mér er semsagt boðið starf hjá ónefndu fyrirtæki í sumar og ég er að fá fleirri upplýsingar. Ég er því eins og máltækið segir, ,, ég er eins og Siggi Björn í brælu, ég veit ekki í hvort fótin ég á að stíga." Því verð ég bara að taka smá tíma og vellta þetta fyrir mér. Þangað til heiri ég í ykkur


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 18:14:56 / einar-ru

Sumarfrí!

Já í mai fer ég til St. Pétursborgar í helgarferð. Maður getur ekki staldrað við í Rússlandi í einhvern tíma án þess að kíkja á þessa perlu. Nóg er af söfnum og gamla borgin mjög fögur. Pétur hinn mikli lét byggja þessa borg sem höfuðborg Rússlands. Staðurinn var ekki ákjósanlegur þar sem þetta voru einungis mýrar. Við byggingu á borginni dóu að talið er allavega 30.000 manns. Ferðin í lest frá Moskvu tekur 8 klst en ég fer yfir nótt þannig að maður getur reynt að sofa eitthvað á leiðinni.

 Fjölskyldan kémur síðan í lok maí og verður hérna í viku. Ég er búin að skipuleggja alla vikunna enda af nóg að taka. Farið verður einn dag síðan út fyrir borgina í þorp sem er fullt af fallegum klaustrum.

 Síðan tekur ævintýrið við. Ég hef ákveðið að fara í ferðarleg þegar fjölskyldan fer. Ekki er búið að ákveða allt, en lýklegt er að ég kaupi mér interrail miða fyrir 22 daga. Ætlunin er að ferðast um austur-evrópu og taka síðan flug frá Þýskalandi, Frakklandi eða Danmörku. Ekki eru allir búnir að ákveða sig en lýklegt er að ég fari með 2-3 öðrum. Síðan er ég fyrstur á biðlista hjá félaga mínum. Hann á að kaupa nýja lödu fyrir tengdarfaðir sinn og keyra honum frá Moskvu til Parísar. Ef annar þeirra sem fara hætta við af einhverjum ástæðum fer ég með. Sama hvað verður kém ég til með að ferðast í rúmar 3 vikur í júní áður en ég kém heim. En ég hef ekki farið í svona reisu áður og komin tími til. Þangað til næst hafði það gott.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 13:09:20 / einar-ru

ákvarðanir og afleiðingar

Seint á laugardagsnótt var ákveðið að fara af skemmtistaðnum sem við höfðum verið á mest alla nóttina. Við lögðum leið okkar á klúb sem heitir Fabrik. Þegar við komum þangað fimm um nóttina var enn röð og einhverjir af hópnum komust ekki inn. Þá ákváðu sumir að láta gott heita en ég ásamt Charlotte (fra) og Contan (fra) ákváðum að fara á Solotæja vobla og fá okkur einn bjór áður en við héldum heim á leið. Einhverjir af hópnum ætluðu að hitta okkur þar en skyluðu sér ekki á endanum. Þegar við höfðum spjallað aðeins og klárað bjórin fórum við heim. Fyrir utan staðinn var lítill en þungur Koltvíoxtankur. Contan ákvað að stela honum og fara með hann á vistina. Þetta var einhver fransku húmor sem er oft skrítinn og óskyljanlegur.  Ég verð að viðurkenna að ég hjálpaði honum, tók tankinn á öxlina og labbaði með hann langleiðina en sagðist ekki ætla labba með þetta inn. Þegar við löbbuðum inn sögðumst við ætla grilla á morgun, verðirnir  bentu okkur að halda áfram og fannst ekkert athugavert við þetta. Á fjórðu hæð biðum við eftir að opnað yrði fyrir okkur en á meðan kom einn vörðurinn og tók tankin án þess að við mótmæltum.  En daginn eftir fór þessi ákvörðun að taka á sig slæma mynd. Contan þurfti að fara niður til varðanna strax og hann vaknaði. Hann var látin skrifa afsökunarbréf sem í stóð að hanna ætlaði ekki að gera neitt með tankin s.s ekki sprengja vistina. Í dag þurfti hann að tala við Kapotínu sem sér um nemendurna og hefur hótað að reka hann úr skólanum. Ég veit ekki hvað kémur til með að gerast en vonandi verður það ekkert slæmt. Ef þetta er ekki nógu slæmt þá er eitt annað sem skéði lýka. Einn varðanna er meðlimur í innanlandsráðuneytinu skipar einhverja stöðu þar eða þekkir allavega vel til. Tatíana sem sér um okkur hérna á vistinni lét Contan vita í gær að hann sé komin á lista yfir ,, hugsanlega hættulega menn í Moskvu.” Þetta er einhverskonar svartur listi og getur vænntanlega haft í för með sér erfileika við að fá Vísa til Rússlands. Þótt að það sem gerðist hafi verið vanhugsað grín og nánast meinlaust eru afleiðingarnar miklar. Áður en þið takið einhverjar ákvarðanir edrú eða full, hugsið um greyið Contan sem kannski aldrey fær að ferðast aftur til Rússlands landsins sem hann elskar.   

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 16:33:54 / einar-ru

Lífið

Já hvað á ég að segja, komin ósk um að ég bloggi eitthvað. Hérna á vistinni er enn verið að vinna og búið að vera að í 10 vikur. Endurbæturnar áttu að taka 8 vikur en aðeins helmingur af allri vinnunni hefur verið kláruð. Ég var að flytja í nýtt og stærra herbergi í gær. tengsl mín við franska nemendur hefur því minnkað því nýji herbergisfélagi minn er Svíi að nafni Match. Herbergin og klósettaðstaðan lýtur mun betur út og manni á bara eftir að líða betur síðustu mánuðina hérna.

 Ég hef verið að leyta af starfi hérna úti í sumar hjá íslenskum fyrirtækjum. Leytin hefur ekki skilað neinum árangri enn, en ég hef fengið jákvætt svar hjá einu af þeim fyrirtækjum sem ég leytaði til en ekkert endanlegt. Annars gengur lífið bara sinn vanagang hérna úti. Þangað til ég hef eitthvað almennilegt að segja þá bið ég að heilsa  öllum heima.   


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 10:37:19 / einar-ru

Hvað er að frétta?

Hérna í Moskvu gengur lífið sinn vanagang. Ég fer í skólan sem eru ekki margir tímar í viku og síðan reynir maður að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég er búin að vera sækja um vinnu í sumar hérna í Moskvu hjá Íslenskum fyrirtækjum. Það gengur hinsvegar rólega en ég verð bara bíða og sjá  hvað gerist.

  Í gær fór ég á pöbbann og horfði á Spurs-Chel$ea spila í FA bikarnum með öðrum Spurs félögum. Rúbluveldið vann leikin á endanum en ég get ekki annað en sagt að leikmenn Spurs gáfu sig alla fram og hefðu getað uppskorið meira en raun var.  Meira af fótbolta, en Magni Jóhannsson AKA Magnadona, fór yfir til Reynis Sandgerðis sem spilar í 1. deild frá KFS úr eyjum sem spila í 3.deild. Hann hefur þegar sett svip sinn á liðið með að skora tvö mörk í fyrstu tvem leikjum félagsins á leiktíðinni. Annað markið var í lengjubikarnum gegn Aftureldingu en hitt var gegn Tindastól í æfingarferð fyrir norðan. Óska ég honum góðs gengis á komandi leiktíð.

 Í dag er komin 13 stiga hiti í frysta skiptið í vor og ætla ég að nýta daginn úti í sólskíninu. Ég bið að heilsa öllum heima og hafði það gott.    


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 10:36:21 / einar-ru

vorið

Vorið er komið að kveða burt snjóinn eins því hérna verður maður ekki var við Lóuna. En nú er vorið farið að láta sjá sig hér í Moskvu. Hitin er farin yfir frostmark og snjórin er hægt og sígandi að hverfa. Um miðjan mars verður hitin vænntanlega komin upp í tíu gráður yfir daginn. Á þessum tíma hefst hin árlega líkvaka hjá borgarstarfsmönnum í ST Pétursborg og víðar. Hún er þannig að borgarstarfsmenn rúnnta um borgina og hirða lík upp af götunni sem er farið að sjást í upp úr snjósköflunum. Þegar snjórinn bráðnar fer nefnilega að sjást fullt af líkum sem urðu undir um veturinn. Þetta er bara partur af hringrásinni hérna úti. Eins og annarstaðar í norðri er rússneska fólkið að breytast í skapinu og verða léttari á sér. Vetrarþunglyndið virðist vera hverfa hjá alþýðunni og bjartari tímar framundan.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 08:29:12 / einar-ru

Fótboltamót Plekanov

Á morgun hefst fyrsti leikurinn í fótboltamóti Plekanovs. Dregið var í riðla í gær, þetta eru tveir riðlar með fimm liðum í hverju riðli. Leikið verður á morgun og síðan alltaf á sunnudögum. Hvert lið leikur því fjóra leiki og situr hjá eina umferð. Leikið er innanhús á handboltavelli, boltin fer aldrei útaf og er leikurinn 2x 20 mínótur. Þetta verða því erfiðir leikir því þolið er kannski ekki sterkasta hliðin hjá mér og sumum liðsfélögum mínum. Einn þýskur leikmaður hefur bæst í hópin sem þýðir að við höfum tvo varamenn sem skiptir öllu máli. Ef einhver meiðsl yrðu á hópnum ættum við litla möguleika á sigri með engan varamann.

 Efstu tvö líðin í hvorum riðli komast síðan áfram og keppa til úrslita. Fyrsta sætið við annað sætið í hinum riðlinum og öfugt. Ég verð með ýtarlega umfjöllun um leiki helgarinnar hérna á blog.central.is/einar-ru.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 08:54:36 / einar-ru

Karladagurinn

Í dag er karladagurinn haldinn hátíðlegur um allt rússland. Þetta er lýka dagur verndara Rússlands því allir karlmenn eru hermenn hérna úti. Strákar á öllum aldri fá gjafir frá konunum í kringum sig. Systur, vínkonur og eiginkonur gera eitthvað sérstakt fyrir karlanna sína. Þetta er rauður dagur sem þýðir engin vinna fyrir flesta. Eitthvað er síðan um hátíðarhöld en þau eru kannski í minna mæli. Mesti munurinn á þessum degi og bóndadeginum heima er að allir karlmenn eru dírkaðir í einn dag.

 Sama er með munin á konudeginum og mæðradeginum heima. Áttunda mars er alþjóðlegi kvennadagurinn haldin hátíðlegur hérna og það sama gerðist nema dæmið snýst við. Auðvita er það líka rauður dagur enda eru frídagarnir hérna í Rússlandi nokkuð margir.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 13:24:41 / einar-ru

Fótbolta mót Plekhanovs

Í byrjun mars hefst hið árlega fótboltamót Plekhanov Háskóla. Þetta árið kémur nýtt lið í hópinn sem ber nafnið ,, The international goldenboys.” Eins og nafnið gefur til kynna eru þetta skiptinemarnir í skólanum. Þessi hópur er til alls lýklegur og hafa sparkspekingarnir hérna úti allir verið sammála að þetta lið geti jafnvel farið alla leið. Það eru fjórir riðlar og efstu tvö liðin komast áfram. Spilað er inni fimm gegn fimm með fastan markmann en liðið er skipað þessum leikmönnum:

 Mark: Misha (Úkraína), Þessi maður býr núna í Hollandi þar sem hann er í skóla. Fyrir tvemur árum fékk hann tvo úrslitakosti frá föður sínum, annarsvegar að fara til Hollands í skóla eða í herinn. Hann valdi seinni kostin og sér ekki eftir því. Hann spilaði með unglingaliðinu Bjolka í sínum heimabæ og árið 1995 varð lið hans Héraðsmeistarar. Ári seinna unnu þeir vodkabikarinn eftirsótta en í þeirri bikarkeppni spila sigurvegarar héraðsmótanna frá árinu á undan. Misha hefur ekki spilað eftir það vegna áfengissýki sem honum áskotnaðist þetta ár.

 Vörn: Samir (Alsir), mikill varnarjaxl enda spilaði hann handbolta lengi. Hann komst jafnvel svo langt að spila með yngri landsliðum Alsírs í handbolta sem skytta. Samir hefur alltaf verið fær bæði í Handbolta og fótolta. Í heimabæ sínum gekk hann undir nafninu Samir Handbolti, en fyrri partur í orðinu handbolti og seinna orðið í fótbolti var slegið saman í eitt vegna þess hversu góður hann var í báðum íþróttunum. Hann er svipuð saga og Bjarnólfur Lárusson sem er orðin 31 árs en ennþá efnilegur.

Vörn: Shasha (Frakkland), þessi leikmaður er óþekktur í okkar röðum þar sem hann er nýkomin til Rússlands. Hann samdi við Goldenboys tíu mínótur áður en félagsskiptaglugganum lokaði 1. janúar eftir að hafa gengist undir læknisskoðun. Erfitt verður fyrir hann að standast undir vænntingum vegna þeirra sagna sem hann hefur sagt okkur. Ein sagan var á þá leið að í einhverjum garði í París var hann að spila einn dag gegn engum öðrum en Saha hjá Man Utd. Hann stóð sig svo vel að eftir leik spurði Saha með hvaða liði hann spilaði? Shasha sagðist bara spila með vinum sínum en Saha ætlaði ekki að trúa því fyrr en vinir hans tóku undir með honum. Þessi saga mynnti mig á myndina ,, White man can´t jump”. En í þeirri mynd seigir karakter wesley Snipes að hann hafi unnið Jordan í körfu eða eitthvað í þá áttina.

 Miðja/Sókn: Contan, (Frakklandi), þekktur undir nafninu Tarantíno vegna þess að fyrra nafn hans er borið fram á frönsku eins og nafn leikstórans. Hann kémur til með að dreifa spilinu og skora nokkur mörk sjálfur. Contan hefur mikið verið í fréttum undanfarið vegna ummæla sinna um að hann spili ekki fyrir sjálfan sig eins og einn ónefndur liðsmaður, heldur allt liðið. Eftir liðsfund í gær var málið shatlað og á æfingu í gær föðmuðust Contan og Ilia sem tákn um virðingu sína fyrir hvörum öðrum.

 Sókn: Ilia (Þýskaland), er fjölhæfur sóknarmaður sem er leikin, markheppinn og snöggur. Þrátt fyrir að Reykja 2 pakka af dag er form hanns ótrúlegt. Hann hleypur 100 metranna á 11 sekóndum sléttum og var lengi í frjálsum. Faðir hans er frá Kazekstan og talar hann því reibrennandi Rússnesku, hann kémur til með að vera okkar túlkur og samningarmaður enda fyrirliði hópsins.

Sókn: Einar (Ísland), Ég kem til að spila mikilvægust rulluna í liðinu, á að koma inná og klára leikina þegar eitthvað er liðið á leikinn.

Eins og ég sagði áður kémur mótið til með að byrja í mars en gæti seinkað fram í april vegna þess hversu ótímalega rússarnir eru. Ég verð með umfjöllun um mótið og þið getið fylgst með því hérna á einar.central.is/einar-ru


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 20:45:48 / einar-ru

Gorkí Park

Gorkí Park er skemmtigarður í miðbæ Moskvu þar sem fólk fer yfir sumartíman til að fara í tæki og stytta tíman. Þarna eru ýmis tæki s.s hringekkja, klessubílar, og rússibani en miðaðvið það sem ég sá í haust var tími til að endurnýja tækin fyrir tíu árum að minnsta kosti. Fólk getur lýka labbað um og reynt fyrir sér í leikjum í hinum og þessum básum.  Þetta er stór garður svipað svæði og miðbær Reykjavíkur fyrir neðan Laugarveg.

Á veturnar tekur allt annað við, allir stígar eru gerðir að svelli og fólk skautar þarna um allt. Ég fór þarna að skauta í dag við litla tilburði en skemmti mér enga að síður. Síðast skautaði ég í skólaferðalagi árið 1996 þannig að þið getið ýmindað ykkur hvernig gekk. Svíin og Finnin sem ég fór með höfðu greinilega skautað nokkrum sinnum en þeir sögðu mér að í grunnskóla fóru bekkirnir þeirra allavega 1x á mánuði að skauta. Fjöldin var þannig að það kæmi mér ekki á óvart ef á hverjum degi skauta þarna um 5-7000 manns. Kostnaðurinn er lítill en fyrir einn og hálfan klukkutíma kostar 400kr að skauta með því að leigja. Rússarnir hafa greynilega gaman að þessu og get ég alveg skylið það. Aðstæðurnar eru góðar og kostnaður lítill.

En lífið hérna í Moskvu er að fara í sitt venjulega horf. Fyrsti dagurinn í skólanum á morgun og vistin að fyllast af nýju fólki. Ég læt áfram vita af mér og bið að heilsa öllum. kv


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill